Merkilegt að lesa danskar
íþróttafréttir um þessar mundir því þar er mikið fjallað um
íslenska landsliðið í handbolta!! Þeir eru pínu glaðir yfir því
að Ólafur hafi ekki getað spilað með í leiknum í kvöld en samt
virka sárir út í serbana fyrir að fara svona með hann!! Kannski
eru þeir bara hræddir um hvað fantarnir eiga eftir að gera við
þá á sunnudaginn þegar þeir verða úthvíldir og komnir með blóð á
boltann eftir að hafa unnið ungverja í kvöld.......finnst ykkur
ég vera að missa mig í sportinu????
Þetta er Þóru að kenna hún
"neyddi" mig til að horfa á leikinn í gær og núna get ég ekki
hætt
...........annars ætti ég að vera áhyggjufull því ég er
hrædd um að Þóra mín sé eitthvað fúl út í allt sem tengist Danmörku
og ég held hún vilji helst banna dönskukennslu á landinu
Kannski
hún lemji mig næst þegar við sjáumst!!!
Í dag var ég á fundi frá
10-16 um gerð stofnanasamninga, það var fjármálaráðurneytið sem
hélt þennan fund. Þetta var ágætis fundur og það var komið inn á
marga punkta sem eiga eftir að nýtast okkur við að gera
stofnanasamninginn fyrir skólann. Það er ein af þessum
aukaverkefnum sem ég er í þessa önnina!
Eftir fundinn fór ég í Bónus
og Samkaup og verslaði slatta! Ég kom líka við á Essó tvisvar í dag
og fékk yndislegu mennina þar til mæla olíuna á bílnum, setja
rúðuvökva á hann og skipta um peru í stefnuljósinu hjá mér sem
gafst upp í dag. Bíllinn minn er sæll og ánægður og ég er nokkuð
sátt!!
Í kvöld er Idol og á morgun
er Evróvision undankeppni þannig að það er tónlistarþema þessa
daganna.
Ég þjáist af verkkvíða þessa
dagana
....ég er rosa góð í að finna afsakanir fyrir því að gera
ýmislegt en nú er ég að fara að taka mig á í þessu. Ég er að hugsa
um að nota eins og 5 klukkutíma á morgun til að hreinsa aðeins til
á vinnuborðinu og svo á sunnudaginn ætla ég að taka aðeins til á
skólaborðinu mínu - þá er ég líka klár í nýja viku!!!
Næstu viku ætla ég svo að
nota til að undirbúa mig andlega fyrir hororvikuna sem er vikan þar
á eftir!!!!!!
Það er samt góð vika að því leyti að mamma mín á
afmæli á fimmtudeginum en það verður svo mikið að gera alla vikuna
að ég hef áhyggjur af því hvernig ég verð stemmd 10
febrúar???!!
Auðvitað veit ég alveg að ég
á eftir að rúlla þessu upp með öllu góða fólkinu sem er að vinna
með mér að hinum ýmsu atburðum en ég verð þreytt!!!!!
Höfum bara áhyggjur af því
seinna....er að hugsa um að fara snemma að sofa svo ég verði
fallegri á morgun en ég er í dag.....sem er í raun og veru mikil
áskorun þar sem ég er hrikalega sæt í dag